Hmm... má ég spyrja um eitt til að tryggja að ég hafi skilið þetta rétt? Sem sagt... Ef ég nýti 0% af frídögunum mínum, þá fæ ég greitt 100% af því sem safnaðist upp í orlofsreikningnum. Ef ég nýti 50% af frídögunum mínum, þá fæ ég greitt 50% af því sem safnaðist upp í orlofsreikningnum. Ef ég nýti 100% af frídögunum mínum, þá fæ ég greitt 0% af því sem safnaðist upp í orlofsreikningnum. ...er þetta rétt skilið hjá mér?
Þú hefur alltaf fullt forræði yfir því hvernig þú ráðstafar fénu á orlofsreikningnum þínum þannig að frítakan þín sem slík hefur ekki áhrif á það en auðvitað í slíku fyrirkomulagi færðu engar frekari greiðslur frá atvinnurekanda vegna frítöku. Hugsunin er að það sem safnast á orlofsreikninginn þinn sé framfærslan þín í orlofstöku.