Hin árlega jeppaferð með 4x4 Húnum á annan í jólum. Fórum 18 manns á 11 jeppum. Fórum upp úr Blöndudal yfir stífluna og í Hveravelli. Það var mest -23 °C en annars stillt og gott veður. Lítill snjór en jókst þegar við nálguðumst Þjófadalina. Lentum í alls kyns brasi, en alltaf er þetta ótrúlega skemmtilegt, enda góður félagsskapur.
5 окт 2024