Færastangir.
Færastangir eru ný vara á markaði, framleidd af sjómönnum fyrir aðra sjómenn.
Tilgangur okkar með þróun á færastöngum er að auðvelda og gera handfæraveiðar skilvirkari.
Minni tími í færaflækjur, minna álag á líkaman þar sem ekki þarf að bogra yfir borðstokk og þar af leiðandi einnig minni slysahætta.
Flestir hafa lent í því að eyða mikilvægum veiðitíma í flækjur og böl. Slíkt kostar mikið þegar upp er staðið, bæði í búnað og einnig í lönduðum kílóum af gæðafiski.
Við viljum minnka hættu á slíku og auðvelda úrvinnslu flækjanna.
Með hönnun Færastanga viljum við einnig auðvelda alla vinnu við að taka fisk af krókum, færa það upp í vinnuhæð á öllum rúllum. Þannig er minna álag á bak og liði, sem skilar okkur heilum í land.
1 окт 2024