Miðja vegu milli Grindavíkur og Krýsuvíkur er að finna rústir gamallar verstöðvar er nefnist Selatangar. Þar má sjá rústir sjóbúða, verkunarhúsa, fiskbyrgja og fleiri mannvirkja sem bera vitni um sjósókn fyrri alda. Og spölkorn vestan við Selatanga er stórbrotin hraunmyndun sem nefnist Katlahraun, þar sem landslag er allt mjög tröllslegt. Saman mynda þessir tveir staðir, Selatangar og Katlahraun, kynngimagnað umhverfi sem vert er og gaman að skoða. Sjá nánar á www.elg.is undir Perlur Suðurnesja.
27 сен 2024