Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var fjallað um hörmungarnar á Filippseyjum og neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi. Meira en fjórar milljónir barna á Filippseyjum eiga nú um sárt að binda eftir einn stærsta fellibyl sem gengið hefur á land í heiminum. UNICEF er með gríðarlegan viðbúnað á svæðinu.
Hægt er að styrkja neyðarsöfnun UNICEF með því að senda sms-ið barn í númerið 1900 og gefa þannig 1.900 krónur. Snögg viðbrögð eru lífsnauðsynleg í neyðarástandi sem þessu.
Framlög heimsforeldra UNICEF renna auk þess til neyðaraðgerðanna á Filippseyjum. Heimsforeldrar gera samtökunum kleift að vera ávallt viðbúin og bregðast hratt og örugglega við líkt og nú. Á Íslandi eru yfir 22.000 heimsforeldrar sem með mánaðarlegum framlögum sínum tryggja að UNICEF geti veitt hjálp þar sem neyðin er mest hverju sinni.
Kvöldfréttir Stöðvar 2 þann 11. nóvember 2013. Fréttamaður: María Lilja Þrastardóttir.
16 окт 2024