Haustið 2012 hélt Memfismafían til Kúbu og tók upp nýja plötu. Í föruneytinu voru Tómas R. Einarsson, þaulreyndur Kúbufari, söngvarinn Sigurður Guðmundsson, hljóðmeistarinn Guðmundur Kristinn Jónsson, textasmiðurinn Bragi Valdimar Skúlason, blásarameistarinn Samúel Jón Samúelsson og kvikmyndatökumaðurinn Ívar Kristján Ívarsson.
Tómas kom hópnum í samband við kúbanska spilara, sem léku listir sínar með Íslendingunum. Lögin, sem voru eftir Tómas, Braga, Sigurð og Samúel, voru öll tekin upp í Egrem stúdíóinu í miðborg Havana og kom platan Okkar menn í Havana út fyrir jólin 2012.
Klipping: Nunni Konn
18 сен 2024