Að kvöldi 20. janúar 1991 brann Skíðaskálinn í Hveradölum til kaldra kola. Steingrímur Erlendsson tók þessar myndir það kvöld.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu:
Skíðaskálinn í Hveradölum er skíðaskáli sem stendur í Hveradölum suðvestan við Reykjafell við rætur Hellisheiðar. Skíðafélag Reykjavíkur reisti skálann 1934 og átti hann til 1971 þegar Reykjavíkurborg keypti hann. Frá 1985 var skálinn í eigu Carls Johansen veitingamanns og fjölskyldu hans. Að kvöldi sunnudagsins 20. janúar 1991 brann hann til kaldra kola en nýr skáli í svipuðum stíl var síðan reistur á sama stað og tekinn í notkun 4. apríl árið eftir. Þar er nú rekið veitingahús.
21 янв 2010