Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, ræddi útlendingamálin, ríkisstjórnarsamstarfið og möguleg framtíðarstjórnarmynstur í nýjasta þætti Spursmála. Yfirferð á fréttum vikunnar voru að stórum hluta tileinkaðar afmæli bjórsins. Í dag eru 35 ár liðin frá því að bjórbanninu var aflétt á Íslandi og er því viðeigandi að fagna bjórnum og rifja upp afléttingu bjórbanns. Arnar Sigurðsson eigandi vínverslunarinnar Santé mætti í settið ásamt Kjartani Vídó Ólafssyni, markaðsstjóra HSÍ og bruggmeistara hjá bjórverksmiðjunni The Brothers Brewery, til að ræða íslenska bjórmenningu nú og þá.
3 мар 2024