Þetta merkilega myndband var tekið í íslandsheimsókn Evu Braun árið 1939 þegar hún kom með þýska skemmtiferðaskipinu Milwaukee. Þetta er því ekki bara merkilegt sakir upprunans heldur er þetta með fyrstu myndskeiðunum í lit sem voru tekin upp á Íslandi. Þetta myndband hefur verið á netinu í allnokkurn í tíma í allavega ástandi og íslandshlutinn hefurn verið illfinnanlegur innan um annað efni á þessum grófklipptu spólum sem reyndust vera boðlegar án höfundarréttarkröfu og vatnsmerkja. Þetta er því klippt út úr frumeintakinu eða allar íslandssenur áamt brottför frá þýskalandi að sið nasista.
Gæðin eru mjög fín miðað við aldur svo ég afréði að klippa út allar Íslandssenur, uppfæra þær í 16/9 skjáhlutföll fyrir smartsjónvörp og leiðrétta hraða auk minniháttar birtu og litalagfæringa.
Frekari vinnsla á borð við 4K uppfærslu og stafræna endurvinnslu með aðstoð gervigreindar ramma fyrir ramma er möguleg og að mínu mati æskileg fyrir sem mest af okkar elsta efni frá íslandi. Ljósmynd segir jú meir en þúsund orð en kvikmynd segir meir en þúsund ljósmyndir. Um leið er ekki bara æskilegt heldur bráðnauðsynlegt að okkar kynslóð sjái þetta efni fyrr en síðar til að nafngreina fólkið á myndunum en gagnvart þessu myndbandi þá er sá tími brátt að renna út, og myndbandið endar sem nafnlaus heimild, og lakari menningarverðmæti fyrir vikið.
Eins vantar aðeins uppá staðsetningar í þessari tiltekna ferðasögu sem greinilega hefst í Vestmannaeyjum en sum innanbæjarskot eru þokukennd og gætu verið frá Reykjavík. Litmyndin úr miðborginni bendir þó til að öll svarthvítu skotin þar á undan séu úr eyjum. Í lokakaflanum er væntanlega staldrað við á Ísafirði en þaðan lá leiðin til Akureyrar en þaðan er ekkert myndefni, því miður.
Uppfært 26 Október 2022:
Mér þykir gaman að segja frá því að á 1:40 er Ásvegur 14 í Vestmannaeyjum og þar sést
Guðni Hallgrímur Jónsson frá Heiði, Skagafirði. Langafabarn hans benti mér á þetta en helstu upplýsingar um Guðna má finna hér: heimaslod.is/i...)
4 окт 2024