Guðbrandur Hlíðar var námsmaður í Danmörku þegar síðari heimsstyrjöldin braust út. Einn góðan veðurdag birtist þar þýskur vísindamaður sem hafði stundað rannsóknir á Íslandi og þekkti foreldra Guðbrands.
Þessi maður starfaði nú fyrir þýsku leyniþjónustuna og virtist gallharður nasisti. Hann vildi að Guðbrandur tæki að sér njósnir á Íslandi fyrir Þjóðverja.
Guðbrandur varð ekki við þessu en málið átti samt eftir að draga dilk á eftir sér. Hann var hnepptur í varðhald í Bretlandi og loks dæmdur fyrir landráð í hæstarétti Íslands. Hann hélt fram sakleysi sínu og segir hér Helga H. Jónssyni fréttamanni sögu sína, en þetta er brot úr hinni vönduðu þáttaröð Stríðsárin á Íslandi sem sýnd var á RÚV árið 1990.
8 окт 2024