Jóhann K. Pétursson Svarfdælingur (1913--1984) var sem kunnugt er stærsti Íslendingur sem sögur fara af, 2,34 m á hæð. Hann starfaði áratugum saman við sirkussýningar og kvikmyndaleik, fyrst í Kaupmannahöfn - þar sem hann festist á stríðsárunum - og síðar í Bandaríkjunum þar sem hann bjó meirihluta ævinnar.
Hér má heyra viðtal sem tekið var við hann á Íslandi árið 1972 en þá hafði hann meðal annars getið sér orð fyrir að hafa leikið í vinsælli Hollywood-mynd, Prehistoric Women, sem fjallaði um hóp steinaldarkvenna sem hataðist við karlmenn.
Myndbandið er fengið af RU-vid-síðu Humperdinkusar, en Lemúrinn fékk það lánað til að geta birt það á síðu sinni. Skoðið fleira ómetanlegt efni á: / humperdinkus
28 апр 2013