Skrapp í örskotsstund í Hlíðarvatn í Selvogi og það var gaman. Fékk 8 bleikjur á um 4 tímum í grenjandi rigningu allan tíman. Hirti fjórar og voru þær 38, 40, 41 og 45 sm langar. Fékk nokkur högg að auki en missti enga í þetta skiptið sem ég er nú barasta nokkuð ánægður með. Þær töku púpur með svörtu og hvítu í, brúnar, peacock, Pheasant tail midge fluguna sem ég hef verið að hnýta og eitthvað fleira. Í raun tóku þær allt sem ég setti undir þannig að það er erfitt að benda á eina flugu. Ég fékk 2 bleikjur í Botnavík, 2 í Innranefi og 4 í Hjalltanga. Ég var einnig lengsta tímann í Hjalltanga því þar er gott að sitja og kasta :) Skemmtilegur dagur og verst að hafa ekki lengri tíma og betra veður, en svona er þetta nú.
10 июл 2013