Einhverjir fengu hland fyrir hjartað þegar þetta innslag var sýnt í Innliti/Útliti á Skjá Einum í vikunni. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á skjarinn.is.
--
Frétt tekin af vísi.is.
Vandlátir valda ólgu
„Við vissum að það yrðu viðbrögð við þessu en okkur datt ekki í hug að þau yrðu svona sterk," segir Þórunn Högnadóttir, einn umsjónarmanna lífstílsþáttarins Innlit/útlit sem sýndur er á Skjá einum.
Símalínur stöðvarinnar loguðu í gær þegar heilmargir hringdu lýstu heilmargir megnri óánægju með innslag í þættinum á þriðjudagskvöld. Þar var í máli og myndum sagt frá endurbótum fjölmiðlamannsins Ásgeirs Kolbeinssonar á íbúð við Bárugranda sem hann festi nýverið kaup á.
Arnar Gauti, einn umsjónarmanna þáttarins, ræddi við Ásgeir fyrir og eftir breytingar. Báðir hafa þeir vandlátan smekk og er skemmst frá að segja að fyrir breytingar féll íbúðin hvorugum í geð. Kölluðu eldhús- og baðinnréttingarnar fram sérstaklega sterkar tilfinningar hjá tvímenningunum, eins og ítrekuð notkun orðanna „ógeðslegt" og „viðbjóður" ber vitni um.
Þá kom fram að Ásgeiri þætti „mjög gott" að fara í bað en gat þó ekki hugsað sér að leggjast í baðkarið sem fylgdi íbúðinni sökum velgju. Að sögn Ásgeirs tók þó steininn úr þegar vinur hans, Jómbi að nafni, sá rimlagardínur sem fylgdu íbúðinni og seldi upp.
Þórunn segir að margir hafi hringt í sig og kvartað yfir sterkum lýsingarorðum Ásgeirs og Arnars á innréttingum, sem í augum leikmanns virtust ósköp venjulegar. „Smekkur manna er misjafn og það hefði kannski verið hægt að orða þetta öðruvísi. En svona tala strákarnir bara saman, þetta eru þeirra karakterar," segir hún en bætir við að eftir á að hyggja hafi þeir ef til vill gengið of langt. „Við pródúsentinn og klipparinn vorum á báðum áttum fyrir þáttinn og hugsuðum með okkur að kannski væri þetta fullgróft. Við klipptum þetta hins vegar til og ákváðum að senda þetta í loftið.
Okkur óraði hins vegar ekki fyrir afleiðingunum."
Þórunn býst við að að brugðist verði við athugasemdum sem þættinum hafa borist. „Hvernig sem það verður. Það hafa svo margir hringt að við verðum að gera eitthvað."
www.visir.is/ap... 20061102/LIFID01/ 111020064/1120/LIFID99
15 сен 2024